Já ég veit, ég er alltof léleg að blogga. Maður bara hefur ekki
tíma til að sitja við tölvu öllum stundum að pikka !!! En allavega
þá er svosum ekkert rosalegt að frétta nema þá helst það sem ég tel
til mikilla afreka að hafa fengið mér í glas 3 daga í röð !!! Á
föstudaginn var nú samt bara rólegheitin heima með honum Jóni
mínum, fengum okkur bjór og rauðvín ( Vicar´s choise merlot frá
Nýja-Sjálandi) það var nú bara fínt fannst mér enda eru vín frá
Nýja-Sjálandi í uppáhaldi hjá mér virðist vera

Á laugardaginn
var svo vinnupartei og að vanda var það brjálað stuð og læti, fyrst
var þó hittingur hjá Hrafnhildi og vara það þrusustuð. Flest
aðalfólkið mætti en vantaði þó nokkra, svo sýndu lika gömul andlit
sig sem eru löngu hætt að vinna með mér, svo það var gaman að sjá
gamla liðið líka

Og svo á sunnudaginn fór ég á skrall með henni
Hildi vinkonu minni en hún skom í surprise ferð frá Danmörku og ég
neyddist til að hitta hana

Skrallið stóð svo lengi að ég
var svo dauðþreytt og eftir mig í gær að ég tók spólu og svo
horfðum við ekki einu sinni á hana sökum ofþreytu, kíkjum á hana
eftir vinnu í dag

Jæja, ég kveð að sinni, Guð blessi ykkur !