Helena Bloggar
Fjölskyldan
Áhugavert
Vinnan
03.04.2006 17:07:54 / Helena

Skýrslan...

Síðan í janúar er ég búin að flytja fyrir mig, mömmu og á síðasta laugardag fyrir pabba. Já það er sko nóg að gera í þessari deildinni skal ég segja ykkur því mamma flytur aftur um miðjan apríl og pabbi í júní...

En annars er það bara að frétta að það var þrusu vinnupartý hjá Hauki á laugardaginn. Hann á heima á stúdentagörðunum sem eru hjá Stýrimannaskólanum. Það var mjög gaman og svo var labbað í bæinn, já ég sagði labba...   Brr... mjög kalt en við ákváðum bara að um leið og við kæmum á laugaveginn myndum við stoppa og hlýja okkur á næstu suddakrá sem við sæjum...og það var Mónakó, ógeðsleg búlla og ekki skánaði það því við þurftum að hlýja okkur aftur á leiðinni og það var á Monte Carlo, crazyness drasl. Svo hitti ég Bryndísi og Evu í bænum :haha: og farið var á aðeins skárri staði en droppað var við á Ara, Sólon og Prikinu og svo var auðvitað haldið á Hressó. Ég var nú ekki ánægð samt þegar ég komst að því að það er ekki hægt að fá latte um miðja nótt !!! Neibb, bara uppáhelt kaffisull sem var búið að vera á könnunni alltof lengi...

Leigubílaröðin var brjálæði og ég var ekki komin heim fyrr en kl.7 !!! Uss... Þá var Jón vaknaður fyrir allar aldir 8|8|8| Oh my god ;)

Svo í gær ætluðum við uppí Borgarnes til ömmunnar hens Jóns en við komusmst ekki lengra en upp á Kjalarnes sökum sinuelda !!!

Annað er ekki frásögu færandi.

Over and out :evil:

Sólrún skrifaði
Hæ elskan ég get alltaf hellt upp á latti fyrir þig anytime;) maður er orðinn ansi sjóaður i þvi núna. En beib ég kem heim um pákana, það væri rosa gaman að hittast . kem á föstud 7 april og fer 25 april
Helena skrifaði
Já frábært, pant hittast :)
Guðný skrifaði
pant hitta þig líka einhvertíman við tækifæri Helena...klikkar aldrei;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.